ENICNARIC ÍSLAND
  • ENIC/NARIC Ísland
    • Þjónustan okkar
    • Um ENIC/NARIC
    • Hæfnirammi
    • Viðmið um æðri menntun og prófgráður
    • Lög og reglugerðir
  • Mat á námi
    • Sjálfvirk viðurkenning
    • Senda umsókn >
      • Umsóknareyðublað
    • Erindi stofnana
    • Lögbundin störf
    • Flóttamenn
  • Inntökuskilyrði
  • Spurt og svarað
  • Hafa samband

Þjónustan okkar


Þjónusta skrifstofunnar fyrir einstaklinga.

Sjálfvirk viðurkenning​
  • Við bjóðum upp á sjálfvirkt mat á nokkrum prófgráðum frá Danmörku, Finnlandi, Noregi, Póllandi og Svíþjóð. Um er að ræða staðlað mat sem hægt er að sækja sjálfvirkt sem pdf skjal og láta það fylgja með þegar þú sækir um nám eða vinnu.
Rafræn umsókn með óstaðfestum gögnum
  • Þú getur sent inn rafræna umsókn með óstaðfestum gögnum og óskað eftir mati á námi þínu. Þú færð þá .pdf skjal frá okkur með mati á námi þínu þar sem tekið er fram að matið sé ekki unnið útfrá staðfestum gögnum. 
Formlegt mat með staðfestum gögnum
  • Ef hægt er að staðfesta gögnin með rafrænum hætti, þ.e. með rafrænni undirskrift eða með aðgangi í gagnagrunn eða ef skólinn þinn getur sent þau beint til okkar, getur þú sent fylgigögnin rafrænt og fengið formlegt bréf þar sem fram kemur mat á námi þínu. Ef þetta er ekki mögulegt og þú óskar eftir formlegu mati, þarft þú að fylla út rafrænu umsóknina, hengja gögnin þín við sem .pdf og skila svo inn frumritum/staðfestum afritum á skrifstofu okkar.
  • Vinsamlegast athugaðu að við bjóðum ekki upp á að hafa samband við skólann til að óska eftir staðfestingu á óstaðfestum gögnum

Þjónusta fyrir stofnanir, háskóla, fyrirtæki og aðra hagsmunaaðila.

Ef þú starfar fyrir stofnun/fyrirtæki og vilt fá álit okkar á menntun fyrir starfsmann eða umsækjanda hjá ykkur, vinsamlegst sendið okkur erindi hér. (Mat á námi)

ENIC/NARIC Ísland
​Setberg - Háskóli Íslands
​Sæmundargata 2
​102 Reykjavík
​Ísland
Tel: +354 525 5452
+354 525 5256 



  • ENIC/NARIC Ísland
    • Þjónustan okkar
    • Um ENIC/NARIC
    • Hæfnirammi
    • Viðmið um æðri menntun og prófgráður
    • Lög og reglugerðir
  • Mat á námi
    • Sjálfvirk viðurkenning
    • Senda umsókn >
      • Umsóknareyðublað
    • Erindi stofnana
    • Lögbundin störf
    • Flóttamenn
  • Inntökuskilyrði
  • Spurt og svarað
  • Hafa samband