Lögvernduð starfsheiti |
ENIC/NARIC Ísland sér um akademískt mat á erlendu námi en veitir ekki starfsleyfi.
Einstaklingar með menntun erlendis frá í starfsgrein sem telst lögbundin hér á landi, geta óskað eftir að fá hana viðurkennda hér á landi og fá útgefið starfsleyfi. Til lögbundinna starfa teljast þau störf sem sérstakt leyfi þarf til að stunda frá þar til bæru stjórnvaldi. Upplýsingar um hvaða störf teljast lögbundin og hvaða stjórnvald fer með viðurkenningu og/eða útgáfu leyfisbréfa er að finna hér: Listi yfir lögbundin störf. |
Starfsmenntun á framhaldsskólastigi |
Hér er hægt að nálgast umsóknareyðublað um mat og viðurkenningu á erlendri starfsmenntun og starfsreynslu erlendis frá: Umsóknareyðublað
Umsóknum um mat á menntun og starfsreynslu erlendis frá þarf að fylgja:
Umsóknum í rafiðngreinum skal skila til Rafmenntar, Stórhöfða 27, 110 Reykjavík eða rafrænt á [email protected] Umsóknum í öðrum iðngreinum skal skila til IÐUNNAR-fræðsluseturs, Vatnagörðum 20, 104 Reykjavík eða rafrænt á [email protected] |
Kennarar, bókasafns- og upplýsingafræðingar og náms- og starfsráðgjafar |
Menntamálastofnun sér um veitingu starfsleyfa til þessara starfsstétta. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar á heimasíðu Menntamálastofnunar.
|
Heilbrigðisstéttir |
Embætti landlæknis sér um veitingu starfsleyfa til allra heilbrigðisstétta. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um starfsleyfin og ferlið við umsóknina á heimasíðu embættisins hér: Starfsleyfi heilbrigðisstétta
|
Önnur lögbundin störf |
Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytið veitir starfsleyfi fyrir aðra sérfræðinga í tækni- viðskipta- og hönnunargreinum. Upplýsingar og eyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu þeirra hér: Eyðublöð
|