Um ENIC/NARIC
ENIC/NARIC Ísland starfar samkvæmt ákvæðum greinar IX.2. í Lissabonsamningnum um viðurkenningu á menntun og hæfi að því er varðar æðra skólastig á Evrópusvæðinu. (Lisbon, 11.IV.1997)
Mat á starfsréttindum fer fram hjá fagráðuneytum undir umsjón mennta- og menningarmálaráðuneytis. ENIC/NARIC Ísland tekur ekki ákvarðanir um mat á námi, heldur veitir leiðbeiningar og ráðgjöf þar um. ENIC stendur fyrir European Network of Information Centres Evrópuráðsins og UNESCO. NARIC stendur fyrir National Academic Recognition Information Centres Evrópusambandsins. ENIC/NARIC skrifstofur eru starfræktar í þeim löndum sem eiga aðild að samningnum og eiga þær með sér náið samstarf. |
Samstarfsaðilar
Sameiginlegt vefsetur samstarfsnets ENIC/NARIC-skrifstofa, með ítarlegum upplýsingum um upplýsingaskrifstofur og matsaðila í hverju landi
Vefsetur með upplýsingum um norrænu ENIC/NARIC-skrifstofurnar og svæðisbundið samstarfsnet þeirra